Verklýsing

1
  • Fáðu viðarkubb hjá kennara.
  • Notaðu reglustiku og dragðu línu milli horna þannig að kross myndist.
  • Miðja viðarbútsins er þar sem línurnar skarast.

2
  • Settu oddinn á hringfaranum þar sem línurnar skarast og þrýstu aðeins niður.
  • Stilltu arminn með blýantsendanum þannig að hann sé nálægt enda viðarkubbsins.
  • Dragðu nú hring með hringfaranum.

3
  • Boraðu gat í miðjunni, þar sem línurnar skarast.
  • Sagaðu hringinn. Haðfu borinn 0,5mm grennri en tréstöngina sem þú ætlar að nota.
  • Sverfðu brúnirnar með þjöl ef þarf og pússaðu svo með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.
4
  • Útbúðu nú odd á tréstöngina með yddara.
  • Sagaðu tréstöngina í þá lengd sem þú heldur að virki best. Lengdin fer aðeins eftir stærð hringsins.
  • Settu stöngina í gatið sem er í miðju hringsins, leggðu hamarinn að og negldu hana niður. prufaðu að að snúa skopparakringlunni. Hér er best að prufa sig áfram með hvar á stönginni er best að hafa hringinn.


5
  • Málaðu nú og skreyttu hringinn að eigin lyst.


×

Scroll to Top