Verklýsing

Þumlapíanó text:

1
  • Fáðu efni hjá kennara.
  • Eina stóra spítu og tvo minni viðarbúta.
  • Þessar litlu eiga að vera jafn stórir.

2
  • Pússaðu allar brúnir vel með sandpappír.
  • Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150 og að lokum 240.

3
  • Ef þú ætlar að skreyta þumlapíanóið þitt þá gerirðu það núna.
  • Gott er að nota tréliti eða það sem kennarinn þinn á og mælir með.
  • Þú litar stóru spítuna og aðra litlu spítuna.

4
  • Settu trélím á litlu spítuna sem ekki er búið að skreyta.
  • Límdu hana fasta við stóru spítuna.
  • Passaðu upp á að brúnirnar séu jafnar.
  • Settu þvingu eða klemmu og bíddu þangað til límið er orðið þurrt.

5
  • Nú þarftu að fá spennur hjá kennaranum þínum.
  • Gott er að hafa 5 spennur sem eru misjafnar að lengd.
  • Settu lím á litlu spítuna sem er núna límd föst við þá stærri.
  • Raðaðu spennunum á límið.

6
  • Settu lím á hina litlu spítuna og settu yfir spennurnar.
  • Notaðu þvingu eða klemmu og bíddu þangað til límið er orðið þurrt.

7
  • Fáðu nagla hjá kennaranum þínum.
  • Nelgdu einn nagla á sinnhvorn endann.
  • Svo neglirðu einum nagla milli allra spennanna.

8
  • Prufaðu nú að spila á píanóið!
×

Scroll to Top