Verklýsing

1
  • Fáðu viðarbút hjá kennara
  • Notaðu reglustiku og dragðu línu milli horna þannig að kross myndist.
  • Miðja viðarbútsins er þar sem línurnar skarast.

2
  • Settu oddinn á hringfaranum þar sem línurnar skarast og þrýstu aðeins niður.
  • Stilltu arminn með blýantsendanum þannig að hann sé nálægt enda viðarbútsins.
  • Dragðu nú hring með hringfaranum.

3
  • Mældu 2cm í sitthvora áttina frá miðju og borðau göt.
  • Sagaðu hringinn út.
  • Sverfðu brúnirnar með þjöl ef þarf og pússaðu svo með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.




4
  • Sagaðu trébútinn niður í tvo jafn langa búta.
  • Sverfðu brúnirnar með þjöl ef þarf og pússaðu svo með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.
  • Borðu tvö göt á báða trébútana með 2 cm langt bil á milli.

5
  • Málaðu nú og skreyttu hringinn að eigin lyst.

6
  • Þræddu nú bandið þannig:
  • fyrst í gegnum annað gatið á öðru handfanginu.
  • Næst í gegnum annað gatið á þeytispjaldinu.
  • Svo í gegnum annað gatið á hinu handfanginu og eftir það fer bandið í gegnum hitt gatið á sama handfangi.
  • Þá í gegnum það gat á þeytispjaldinu sem ekki er búið að þræða í gegnum og að lokum gegnum seinna gatið á handfanginu sem byrjað var á.
  • Nú bindurðu sterkan hnút á bandið.

7
  • Leiktu þér með þeytispjaldið þitt. Kemur þytur?

 

×

Scroll to Top