Verklýsing
1
- Fáðu viðarlengju úr furu og þunna krossviðsplötu hjá kennara.
- Ákveddu lengd og breidd kistilsins.
- Notaðu tommustokk og mældu þrjá jafn langa búta sem eru tvær hliðar og lokið.
- Notaðu vinkil til að strika beina línu þvert yfir viðinn. Þannig verður hún hornrétt (90°).
- Mældu, merktu jafn langan bút af þunnu krossviðsplötunni sem verður botn.

2
- Festu bakkann við hefilbekk. Nú festir þú viðinn í bakkann og sagar með bakkasöginni eftir línunum sem þú merktir.
- Nú ertu komin með fram- og bak hliðar, lok og botn.

3
- Mældu, merktu og sagaðu fyrir hliðunum á sama hátt og útskýrt var hér fyrir ofan.
4
- Pússaðu hliðarnar sem munu snúa inn í kistlinum með 150 sandpappír
- Límdu nú kistilinn saman með trélími og festu saman með málningarlímbandi.
- Notaðu 2 til 4 þvingur til að festa kassan saman þar til límið hefur þornað.
- Fjöldi þvinga fer eftir stærð kistilsins.

5
- Teiknaðu boga á endan eins og þú vilt hafa hann og festu síðan kistilinn í hefilbekkinn og heflaðu bogann á lokið.


6
- Pússaðu kistilinn mjög vel. Byrjaðu á sandpappír.
- Byrjaðu á grófum pappír númer 150 svo notar þú 240 og að lokum 320.

7
- Nú sagar kennarinn kistilinn þannig að brúnin á lokinu verði u.þ.b 1cm.
- Tiltu nú lokinu á og festu með málningateipi en hafðu saman brotið blað á milli.
- Merktu fyrir hjörum.
- Skrúfaðu hjarirnar fastar.

8
- Ef þú ætlar að skreyta kistilinn með brennipenna þá gerirðu það núna
- Berðu olíu á kistilinn eða lakk, allt eftir því hvað kennarinn þinn á til

