Verklýsing
1
- Fáðu efni hjá kennara fyrir endastykkjum bakkans.
- Náðu í blað og skissaðu nokkrar útgáfur.
- Mundu að gera ráð fyrir handfangi.
2
- Klipptu niður blað í sömu stærð og viðurinn sem kennarinn lét þig fá.
- Veldu eina af skissunum þínum og teiknað á sniðið.
- Brjóttu blaðið til helminga og klipptu eftir teikningunni.
- Opnaðu blaðið, nú er sniðið þitt tilbúið
- Leggðu sniðið á viðinn og teiknaðu eftir því.
3
- Borðau gat þar sem handfangið á að vera.
- Sagaðu handfangið út með lauf- eða tifsög.
4
- Sagaðu nú eftir teikningunni sem komin er á endastykkin.
- Notaðu lauf- eða tifsög, allt eftir því hvað þér finnst best.
5
- Notaðu þjöl og sverfðu til að formið verði nákvæmara.
- Pússaðu nú með sandpappír.
- Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150 og 240..
6
- Fáðu tvo hliðarlista hjá kennara þar sem búilð er að saga litla sillu og tvær raufar á endana.
- Festu einn lista í einu í hefilbekkinn.
- Náðu í sporjárn og plasthamar.
- Láttu sporjárnið hvíla á sillunni og hamraðu laust þannig að efnið kvarnist af og sillan stækkar.
7
- Mældu fyrir tveimur skrúfum á hverri sillu fyrir sig og boraðu göt með 3mm breiðum bor.
8
- Festu annað endastykkið lóðrétt í hefilbekkinn
- Nú þarf að setja hliðarlista ofan á þannig að það sillan hvíli á endastykkinu.
- Þetta þarf að gera í samvinnu við annan nemanda sem heldur meðan stykkin eru skrúfuð saman.
- Notaðu 3mm breiðar skrúfur.
- Endurtaktu þetta fjórum sinnum eða þar til rammi bakkans er tilbúin.
9
- Fáðu þunna krossviðsplötu hjá kennara fyrir botninn.
- Festu endastykki lárétt í hefilbekkinn.
- Leggðu krossviðsplötuna ofan á rammann og nelggldu hana fasta við rammann.
- Notaðu fíngerða listanagla.
- Fáðu hjálp samnemanda við að halda við botninn.
10
- Skreyttu bakkann.
- Hægt er að nota brennipenna eða málningu. Allt eftir því hvað kennarinn þinn leggur til.
- Gott er að lakka bakkann eftir að hann er skreyttur með brennipenna.