Verklýsing

1
  • Fáðu viðarbút hjá kennara.
  • Festu viðinn í hefilbekkinn með bekkhökunum
  • Passaðu að hakarnir séu fyrir neðan viðinn.
  • Heflaðu viðinn til að hann verði sléttur.



2
  • Skissaðu nokkrar útgáfur af skurðarbretti.
  • Teiknaðu brettið í réttri stærð eftir þinni hönnun og klipptu út sniðið.
  • Legðu sniðið á viðinn og dragðu eftir útlínunum.


3
  • Ef þú ætlar að bora gat til að geta hengt brettið upp þá er gott að gera það núna.
  • Sagaðu eftir blýantsteikningunni með laufsög eða tifsög.

4
  • Taktu þjöl og sverfðu hliðarnar þar sem það þörf er á.
  • Ef þú vilt hafa brúnirnar rúnaðar þá sverfurðu þær núna.
  • Pússaðu brúnir og hliðar með sandpappír.
  • Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 120, 180 og að lokum 240.
  • Gott er að bleyta aðeins viðinn fyrir loka pússninguna því þá ýfist viðurinn aðeins upp, pússaðu aftur.



5
  • Ef þú ætlar að skreyta brettið þá er rétti tími til þess núna.
  • Teiknaðu upp skreytingu og brennimerktu ef þú vilt.
  • Nú berðu olíu á brettið.
  • Láttu olíuna þorna vel.
×

Scroll to Top