Verklýsing
1
- Teiknaðu búk fyrir flygildi á blað. Þú getur skoðað myndir af fuglum eða hannað þitt eigið flygildi eða furðufugl.
- Auðvelt er að aðlaga verkefnið og flækja á ýmsa vegu t.d. að gera fætur, stél eða skott sem festast á búkinn. Festa þessa hluti áður en borað er í fyrir vængjum til að jafnvægið sé rétt.

2
- Fáðu viðarbút hjá kennara.
- Settu kalkipappír á furubútinn og teikninguna af þína ofan á. Tylltu þessu niður með teipi.
- Dragðu nú yfir teikninguna þína með blýanti.
- Losaðu teikninguna og kalkipappírinn. Nú á myndin að vera komin yfir á furuna.
3
- Sagaðu út fuglsbúkinn með tifsög eða laufsög.
- Sverfðu brúnirnar með þjöl og pússaðu svo með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.

4
- Teiknaður fuglsvæng á annað blað. Vængurinn þarf að vera jafn langur eða lengri en búkurinn. Lengri vængir fljúga betur.
- Settu nú kalkipappírinn á krossviðsplötuna og teikninguna af vængnum ofaná. Passaðu að hafa pláss fyrir tvo vængi.
- Dragðu yfir teikninguna af vængnum með blýanti. Færðu kalkipappírinn og teikninguna og dragðu upp annan væng.


5
- Sagaðu vængina út með tif- eða laufsög.
- Sverfðu brúnirnar með þjöl og pússaðu svo með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.

6
- Finndu nú jafnvægispunktinn á búknum. Ef þú heldur laust í búkinn með tveimur fingrum fyrir um það bil miðju búksins og hann hallar hvorki fram né aftur hefur þú fundið jafnvægispunktinn. Merktu hér með blýanti.
- Finndu miðjuna á enda vængjanna. Boraðu nú tvö göt á endann á hvorum væng, sitt hvoru megin við miðjuna (staðsetningin þarf ekki að vera mjög nákvæm).
- Leggðu miðjlínu vængsins við miðjupunkt búksins og merktu á búkinn fyrir tveimur götum með sama millibili og á vængnum. Boraðu nú tvö göt á á búkinn.
- Þræddu þráð eða bant í gegnum göt búksins og vængjanna. Athugaðu að bandið fer á milli gata undir vængjunum. Bintu bandið passlega fast þannig að vængir fuglsins geti hreyfst.
- Finndu nú jafnvægispunkt vængjanna. Þetta gerir þú með því að hengja tvö bönd í kringum vængi fuglsins. Þegar vængirnir eru í beinni lágréttri línu, og halda jafnvægi, merktu hvar böndin liggja á vængnum. Boraðu nú tvö göt á sitthvorn vænginn, í línu við merkingarnar.
- Boraðu gat á sitthvorn endann á tré stönginni.
- Þræddu sitthvort bandið í gegnum vængina og bintu í gegnum götin á stönginni.
7
- Málaðu eða skreyttu flygildið að eigin vild.

