Verklýsing

1
  • Teiknað form á blað sem passar á þynnri MDF kubbinn.
  • Settu kalkipappír á MDF kubbinn og teikninguna ofan á. Tylltu þessu niður með teipi.
  • Dragðu nú yfir teikninguna þína með blýanti.
  • Losaðu teikninguna og kalkipappírinn. Nú á myndin að vera komin yfir á MDF kubbinn.

2
  • Boraðu gat fyrir innan teikninguna.
  • Settu sagarblað í gatið og sagaðu formið út.

3
  • Nelgdu nú MDF kubbinn ofan á þykkari kubbinn. Einn nagla í hvert horn.
  • Nú er mótið tilbúið.

4
  • Settu tin í bræðsluskálina.
  • kveiktu á lóðbyssunni og bræddu tinið.
  • Þegar tinið er orðið að fljótandi efni er því hellt varlega í mótið.
5
  • Þegar málmurinn hefur kólnað og er aftur orðin að hörðu efni eru naglarnir fjarlægðir og málmurinn losaður úr mótinu.
6
  • Sverfðu brúnirnar með þjöl og pússaðu með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 320, næst notar þú 400, 600 og að lokum 1000 /1500.
  • Boraðu gat og pússaðu með sandpappír ef þarf.
  • Póleraðu nú stykkið og settu hlekk i gatið.
×

Scroll to Top