Verklýsing

1
  • Fáðu efni hjá kennara fyrir endastykkjum bakkans.
  • Náðu í blað og skissaðu nokkrar útgáfur.
  • Mundu að gera ráð fyrir handfangi.

 

2
  • Klipptu niður blað í sömu stærð og viðurinn sem kennarinn lét þig fá.
  • Veldu eina af skissunum þínum og teiknað á sniðið.
  • Brjóttu blaðið til helminga og klipptu eftir teikningunni.
  • Opnaðu blaðið, nú er sniðið þitt tilbúið
  • Leggðu sniðið á viðinn og teiknaðu eftir því.

 

3
  • Borðau gat þar sem handfangið á að vera.
  • Sagaðu handfangið út með lauf- eða tifsög.

 

4
  • Sagaðu nú eftir teikningunni sem komin er á endastykkin.
  • Notaðu lauf- eða tifsög, allt eftir því hvað þér finnst best.

 

5
  • Notaðu þjöl og sverfðu til að formið verði nákvæmara.
  • Pússaðu nú með sandpappír.
  • Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150 og 240..
6
  • Fáðu tvo hliðarlista hjá kennara þar sem búilð er að saga litla sillu og tvær raufar á endana.
  • Festu einn lista í einu í hefilbekkinn.
  • Náðu í sporjárn og plasthamar.
  • Láttu sporjárnið hvíla á sillunni og hamraðu laust þannig að efnið kvarnist af og sillan stækkar.

 

7
  • Mældu fyrir tveimur skrúfum á hverri sillu fyrir sig og boraðu göt með 3mm breiðum bor.

 

8
  • Festu annað endastykkið lóðrétt í hefilbekkinn
  • Nú þarf að setja hliðarlista ofan á þannig að það sillan hvíli á endastykkinu.
  • Þetta þarf að gera í samvinnu við annan nemanda sem heldur meðan stykkin eru skrúfuð saman.
  • Notaðu 3mm breiðar skrúfur.
  • Endurtaktu þetta fjórum sinnum eða þar til rammi bakkans er tilbúin.

 

9
  • Fáðu þunna krossviðsplötu hjá kennara fyrir botninn.
  • Festu endastykki lárétt í hefilbekkinn.
  • Leggðu krossviðsplötuna ofan á rammann og nelggldu hana fasta við rammann.
  • Notaðu fíngerða listanagla.
  • Fáðu hjálp samnemanda við að halda við botninn.

 

10
  • Skreyttu bakkann.
  • Hægt er að nota brennipenna eða málningu. Allt eftir því hvað kennarinn þinn leggur til.
  • Gott er að lakka bakkann eftir að hann er skreyttur með brennipenna.

 

×

Scroll to Top