Verklýsing

1
  • Teiknaðu búk fyrir flygildi á blað. Þú getur skoðað myndir af fuglum eða hannað þitt eigið flygildi eða furðufugl.
  • Auðvelt er að aðlaga verkefnið og flækja á ýmsa vegu t.d. að gera fætur, stél eða skott sem festast á búkinn. Festa þessa hluti áður en borað er í fyrir vængjum til að jafnvægið sé rétt.

2
  • Fáðu viðarbút hjá kennara.
  • Settu kalkipappír á furubútinn og teikninguna af þína ofan á. Tylltu þessu niður með teipi.
  • Dragðu nú yfir teikninguna þína með blýanti.
  • Losaðu teikninguna og kalkipappírinn. Nú á myndin að vera komin yfir á furuna.
3
  • Sagaðu út fuglsbúkinn með tifsög eða laufsög.
  • Sverfðu brúnirnar með þjöl og pússaðu svo með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.

4
  • Teiknaður fuglsvæng á annað blað. Vængurinn þarf að vera jafn langur eða lengri en búkurinn. Lengri vængir fljúga betur.
  • Settu nú kalkipappírinn á krossviðsplötuna og teikninguna af vængnum ofaná. Passaðu að hafa pláss fyrir tvo vængi.
  • Dragðu yfir teikninguna af vængnum með blýanti. Færðu kalkipappírinn og teikninguna og dragðu upp annan væng.


5
  • Sagaðu vængina út með tif- eða laufsög.
  • Sverfðu brúnirnar með þjöl og pússaðu svo með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.

6
  • Finndu nú jafnvægispunktinn á búknum. Ef þú heldur laust í búkinn með tveimur fingrum fyrir um það bil miðju búksins og hann hallar hvorki fram né aftur hefur þú fundið jafnvægispunktinn. Merktu hér með blýanti.
  • Finndu miðjuna á enda vængjanna. Boraðu nú tvö göt á endann á hvorum væng, sitt hvoru megin við miðjuna (staðsetningin þarf ekki að vera mjög nákvæm).
  • Leggðu miðjlínu vængsins við miðjupunkt búksins og merktu á búkinn fyrir tveimur götum með sama millibili og á vængnum. Boraðu nú tvö göt á á búkinn. 
  • Þræddu þráð eða bant í gegnum göt búksins og vængjanna. Athugaðu að bandið fer á milli gata undir vængjunum. Bintu bandið passlega fast þannig að vængir fuglsins geti hreyfst.
  • Finndu nú jafnvægispunkt vængjanna. Þetta gerir þú með því að hengja tvö bönd í kringum vængi fuglsins. Þegar vængirnir eru í beinni lágréttri línu, og halda jafnvægi, merktu hvar böndin liggja á vængnum. Boraðu nú tvö göt á sitthvorn vænginn, í línu við merkingarnar.
  • Boraðu gat á sitthvorn endann á tré stönginni.
  • Þræddu sitthvort bandið í gegnum vængina og bintu í gegnum götin á stönginni.
7
  • Málaðu eða skreyttu flygildið að eigin vild.


×

Scroll to Top