Verklýsing
1
- Fáðu viðarlengjur hjá kennara, í tveimur mismunandi breiddum.
- Taktu breiðari lengjuna og mældu 18 cm og 20 cm.
- Nú tekurðu mjórri lengjuna og mælir 14 cm og 16 cm.
- Notaðu vinkil til að strika beina línu þvert yfir viðinn þar sem mælingarnar eru. Þannig verður hún hornrétt (90°).

2
- Festu bakkann við hefilbekk.
- Nú festir þú viðarlengjuna í bakkann og sagar með bakkasöginni eftir línunum sem þú merktir.
- Pússaðu brúnirnar á með sandpappír.
- Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150 og 240.


3
- Til að útbúa botninn tekur þú 14cm og 16cm stykkin sem er búið að saga niður úr mjórra efninu.
- Mældu fyrir tveimur skrúfum.
- Boraðu göt með 2,5mm bor.
- Festu í hefilbekkinn og skrúfaðu saman
- Stærð á skrúfum 3,0 x 40 skrúfum.
4
- Fyrir þakið, tekurðu 18cm og 20cm löngu stykkin sem eru úr 12cm breiða efninu.
- Mældu og merktu fyrir skrúfum eins og þú gerðir fyrir botninn.
- Borðau göt með 2,5mm bor.
- Festu í hefilbekkinn og skrúfaðu saman
- Stærð á skrúfum 3,0 x 40 skrúfum.
5
- Mældu fyrir skrúfum eins og áður.
- Boraðu göt með sömu þykkt/stærð af bor, 2,5mm bor.
- Skrúfaðu botn og hliðar saman
- með 3,0 x 40 skrúfum.
- Skrúfaðu þakið á.
6
- Hliðar á húsið eru útbúnar úr 6 mm þykkum krossviði.
- Sagaðu út ferming sem er ca. 11x11cm eða 12x12cm.
- Strikaðu milli tveggja horna á ferningnum, þannig að hann skiptisti í tvo þríhyrninga.
- Sagaðu nú eftir línunni með laufsög.
- Pússaðu báða þríhyrningana með sandpappír.
- Byrjaðu á sandpappír no. 60 og svo 150.
7
- Nelgdu nú þríhyrningana fasta við botninn.
- Ef þú ætlar að hafa fuglaprik (dílaefni) þá þarftu að bora gat sem er jafn sver og dílinn.
7
- Berðu olíu eða fúavörn á fuglafóðurhúsið.
- Settu band undir þakið í þeirri lengd sem þú heldur að passi best.
- þú getur einnig hannað eigin útfærslu á því hvernig þú telur best að hengja húsið upp.