Verklýsing

1
  • Fáðu viðarlengju hjá kennara.
  • Notaðu tommustokk og mældu 5 jafn langa búta.
  • Notaðu vinkil til að strika beina línu þvert yfir viðinn.Þannig verður hún hornrétt (90°).

2
  • Festu bakkann við hefilbekk. Nú festir þú viðarlengjuna í bakkann og sagar með bakkasöginni eftir línunum sem þú merktir.
  • Pússaðu brúnirnar á kubbunum með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.


Demo gif

3
  • Mældu x cm borða. Klipptu þrjá jafn langa borða.
  • Tylltu borðunum með lími á styttri enda eins kubbs. Á öðrum endanum er einn borði fyrir miðju. Á hinum endanum eru tveir borðar sitt hvoru megin við miðjuna.

4
  • Leggðu borðana yfir kubbinn.
  • Þegar þrír borðar liggja yfir kubbnum leggur þú næsta kubb ofan á. Passaðu upp á að herða borðann ekki of mikið en athugaðu líka að hann má ekki liggja of laus.
  • Endurtaktu þar til síðasti kubburinn er kominn í staflann.



5
  • Smeygðu gúmmíteygju þvert yfir alla kubbana (eða fáðu hjálp).
  • Tylltu endunum á borðunum með lími við síðasta kubbinn, eins og þú gerðir í upphafi.
  • Festu kubbastaflann í hefilbekkinn með teygjunni á.
6
  • Nú þarf að festa borðana. Negldu einn nagla fyrir miðju á hverjum borða.
  • Snúðu kubbnum við og endurtaktu.
  • Til að tryggja að borðinn sé vel festur er gott að fá kennara til að hefta niður borðana með heftibyssu.


7
  • Taktu teygjuna af staflanum og snyrtu til endana á borðunum ef þarf.
  • Opnaðu varlega og leiktu þér.


 

×

Scroll to Top