Verklýsing

1
  • Fáðu viðarlengju úr furu og þunna krossviðsplötu hjá kennara.
  • Ákveddu lengd og breidd kistilsins.
  • Notaðu tommustokk og mældu þrjá jafn langa búta sem eru tvær hliðar og lokið.
  • Notaðu vinkil til að strika beina línu þvert yfir viðinn. Þannig verður hún hornrétt (90°).
  • Mældu, merktu jafn langan bút af þunnu krossviðsplötunni sem verður botn.

2
  • Festu bakkann við hefilbekk. Nú festir þú viðinn í bakkann og sagar með bakkasöginni eftir línunum sem þú merktir.
  • Nú ertu komin með fram- og bak hliðar, lok og botn.


Demo gif

3
  • Mældu, merktu og sagaðu fyrir hliðunum á sama hátt og útskýrt var hér fyrir ofan.

 

4
  • Pússaðu hliðarnar sem munu snúa inn í kistlinum með 150 sandpappír
  • Límdu nú kistilinn saman með trélími og festu saman með málningarlímbandi.
  • Notaðu 2 til 4 þvingur til að festa kassan saman þar til límið hefur þornað.
  • Fjöldi þvinga fer eftir stærð kistilsins.

 

5
  • Teiknaðu boga á endan eins og þú vilt hafa hann og festu síðan kistilinn í hefilbekkinn og heflaðu bogan á lokið.
6
  • Pússaðu kistilinn mjög vel. Byrjaðu á sandpappír.
  • Byrjaðu á grófum pappír númer 150 svo notar þú 240 og að lokum 320.

 

7
  • Nú sagar kennarinn kistilinn þannig að brúnin á lokinu verði u.þ.b 1cm.
  • Tiltu nú lokinu á og festu með málningateipi en hafðu saman brotið blað á milli.
  • Merktu fyrir hjörum.
  • Skrúfaðu hjarirnar fastar.

 

8
  • Ef þú ætlar að skreyta kistilinn með brennipenna þá gerirðu það núna
  • Berðu olíu á kistilinn eða lakk, allt eftir því hvað kennarinn þinn á til.

 

×

Scroll to Top