Verklýsing

1
  • Fáðu viðarlengjur hjá kennara sem er með 30° halla á tveimur endum.
  • Ef búa á til hólka undir liti og slíkt þá þarf mjóa renninga en stærri þegar gera skal hillu eða box.
  • Notaðu vinkil til að strika beina línu þvert yfir viðinn. Þannig verður hún hornrétt (90°).

2
  • Festu bakkann við hefilbekk.
  • Festu viðarlengjuna í bakkann og sagaðu með bakkasöginni eftir línunni sem þú merktir.

3
  • Til þess að búa til einn kassa þarf sex jafn langar lengjur, finndu hversu há box þín eiga að vera. Gerðu þrjú mis há box.


4
  • Raðaðu öllum sex kubbunum í lengju, þannig að gráðurnar sem þú hefur sagað snúi niður.
  • Passaðu að þeir séu í beinni línu
  • Festu þá saman með málararteipi.
  • Hafðu ríflegt af límbandi á öðrum enda lengjunnar.


5
  • Snúðu lengjunni varlega við.
  • Settu trélím í öll samskeyti og á annan endann.
  • ,,Rúllaðu” lengjuna upp þannig að sexhyrningur myndist
  • Festu saman með límbandsbútnum sem var ríflegt af.
  • Strjúktu allt auka trélím í burtu.




6
  • Fáðu viðarplötu hjá kennaranum fyrir botninn.
  • Leggðu sexhyrninginn á plötuna og strikaðu eftir útlínum með blýanti.
  • Sagaðu eftir línunni með laufsög eða tifsög.
  • Notaðu trélím til að líma sexhyrninginn niður á formið sem sagað var út.
  • Festu saman með þvingum.




7
  • Pússaðu brúnirnar á með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.
  • Nú getur þú skreytt boxið að vild.

 

×

Scroll to Top