Verklýsing
1
- Fáðu viðarbút hjá kennara
- Notaðu reglustiku og dragðu línu milli horna þannig að kross myndist.
- Miðja viðarbútsins er þar sem línurnar skarast.

2
- Settu oddinn á hringfaranum þar sem línurnar skarast og þrýstu aðeins niður.
- Stilltu arminn með blýantsendanum þannig að hann sé nálægt enda viðarbútsins.
- Dragðu nú hring með hringfaranum.

3
- Mældu 2cm í sitthvora áttina frá miðju og borðau göt.
- Sagaðu hringinn út.
- Sverfðu brúnirnar með þjöl ef þarf og pússaðu svo með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.




4
- Sagaðu trébútinn niður í tvo jafn langa búta.
- Sverfðu brúnirnar með þjöl ef þarf og pússaðu svo með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.
- Borðu tvö göt á báða trébútana með 2 cm langt bil á milli.

5
- Málaðu nú og skreyttu hringinn að eigin lyst.

6
- Þræddu nú bandið þannig:
- fyrst í gegnum annað gatið á öðru handfanginu.
- Næst í gegnum annað gatið á þeytispjaldinu.
- Svo í gegnum annað gatið á hinu handfanginu og eftir það fer bandið í gegnum hitt gatið á sama handfangi.
- Þá í gegnum það gat á þeytispjaldinu sem ekki er búið að þræða í gegnum og að lokum gegnum seinna gatið á handfanginu sem byrjað var á.
- Nú bindurðu sterkan hnút á bandið.

7
- Leiktu þér með þeytispjaldið þitt. Kemur þytur?