Verklýsing
Þumlapíanó text:
1
- Fáðu efni hjá kennara.
- Eina stóra spítu og tvo minni viðarbúta.
- Þessar litlu eiga að vera jafn stórir.

2
- Pússaðu allar brúnir vel með sandpappír.
- Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150 og að lokum 240.

3
- Ef þú ætlar að skreyta þumlapíanóið þitt þá gerirðu það núna.
- Gott er að nota tréliti eða það sem kennarinn þinn á og mælir með.
- Þú litar stóru spítuna og aðra litlu spítuna.

4
- Settu trélím á litlu spítuna sem ekki er búið að skreyta.
- Límdu hana fasta við stóru spítuna.
- Passaðu upp á að brúnirnar séu jafnar.
- Settu þvingu eða klemmu og bíddu þangað til límið er orðið þurrt.

5
- Nú þarftu að fá spennur hjá kennaranum þínum.
- Gott er að hafa 5 spennur sem eru misjafnar að lengd.
- Settu lím á litlu spítuna sem er núna límd föst við þá stærri.
- Raðaðu spennunum á límið.

6
- Settu lím á hina litlu spítuna og settu yfir spennurnar.
- Notaðu þvingu eða klemmu og bíddu þangað til límið er orðið þurrt.

7
- Fáðu nagla hjá kennaranum þínum.
- Nelgdu einn nagla á sinnhvorn endann.
- Svo neglirðu einum nagla milli allra spennanna.

8
- Prufaðu nú að spila á píanóið!