Verklýsing
1
- Teiknaðu fígúru á blað.
- Þetta getur verið fugl, raketta eða hvað sem sem er.
- Fáðu viðarbút hjá kennara.
- Settu kalkipappír á viðinn og teikninguna þína ofan á.
- Tylltu þessu niður með teipi.
- Dragðu nú yfir teikninguna þína með blýanti.
- Losaðu teikninguna og kalkipappírinn.
- Nú á myndin að vera komin yfir á viðinn.



2
- Festu útsögunarklauf í hefilbekk og sagaðu fígúruna út með laufsög.

3
- Mótaðu fígúruna enn betur með raspi, ef þarf.
- Sverfðu nú brúnir og ójöfnu með þjöl.
- Pússaðu með sandpappír. Byrjaðu á grófum pappír númer 60, næst notar þú 150, 240 og að lokum 320.
4
- Málaðu fígúruna eins og þú vilt hafa hana.


5
- Fáðu efni hjá kennara sem notað verður í fótstykkið.
- Boraðu fyrir járnteininum með súluborvél fyrir miðju stykkisins.
- Bor og járnteinninn eiga að vera jafn þykkir.
- Pússaðu með sandpappír: no.60, 150, 240, 320
- Settu lím í gatið á stærra stykkinu og járnteininn ofan í.
- Leyfðu líminu að þorna.
6
- Fáðu efni hjá kennara fyrir hnúð sem verður settur á topp teinsins.
- Boraðu fyrir járnteininum með súluborvél fyrir miðju stykkisins.
- Formaðu stykkið eins og þú vilt hafa það. Notaðu sög, raspi og þjöl.
- Pússaðu með sandpappír: no.60, 150, 240, 320.
7
- Fáðu efni hjá kennara sem mun fara utan um teininn.
- Boraðu í gegnum efnið með bor sem er 0,5mm stærri/breiðari en teinninn.